Undanfarnir dagar eru búnir að vera hreint sagt bissý hjá sveitinni.
eru drengirnir búnir að standa í ströngu síðan á fimmtudag
Allt voru þetta aðstoð við bíla á heiðinni.
veður er búið að vera til mikillar hamingju skaplegt nema að snjór kyngir niður og heiðinn er frekar snögg að teppast.
Aðrar fréttir..
flöskutalning sem vera átti í kvöld var frestað vegna lélegrar mætingar og útkalls.
Sendum við sms um leið og við sjáum að tími verði.
Nonni eðal formaðurinn
hefur fest kaup á nýjum galla..
Þegar drengurinn varð 40 ára í sumar gaf sveitin honum innlegsnótu í 66.norður og átti kallin að kaupa nýjan galla. sem jú og hann gerði..
Og viti menn hann fór í svo svakalegt innkaupaæði að hann verlaði sér líka vinnugalla.. viljum við óska kallinum til hamingju með nyja gallan því ekki var gamli fallegur svona 20 ára gamall......... þó traustur sé...
Sveitinni var færð peningagjöf um daginn og við peningana var verslaður nætursjónauki. sem búið er að skreppa með út á sjó og upp á fjall.
gripurinn virkar svona svaðalega vel og eru allir sáttir við kaupin.
Tetra er farið að virka svona vel og eru sveitarmenn og konur í öngum sínum yfir muninum á tetra og VHF stöðvunum.
Sveitin á núna einar 6 stöðvar og er verið að bíða eftir tilboði fra Landsbjörg á föstum stöðvum og bílastöðvum með endurvarpa.
vonum við að það komi nú.
Flugveldarnir eru nú ofarlega í huga og erum við að setja niður vinnuplan
Kvetjum við nú alla meðlimi að reyna að taka frá einhvern tíma í vinnu í ´sölu eða gæslu.
Heimir j
Kveður nú og vonar að félagsmenn fari nú að skella inn kveðju
Munið mánudagana
mánudagur, 3. desember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli